GT: Viðtal við Guðbjörn Haraldsson
27. ágúst 2007
Guðbjörn Haraldsson er fæddur á Siglufirði 1948 og fór sinn fyrsta túr á togaranum Hafliða sumarið 1963. Hann er sonur hjónanna Ástfinnu Pálsdóttur og Haraldar Albertssonar, bifreiðastjóra. Guðbjörn er með afbrigðum sagnaglaður maður og mér lék forvitni á að vita hvernig Hafliðaveran hefði lagst í hann:
Þetta var ótrúleg upplifun að koma nánast beint úr skólanum af regluheimili í sollinn um borð. Þarna var hver togarajaxlinn upp af öðrum og daglegar uppákomur. Þó ég væri ekki nema á þriðja ár um borð þá færi ég létt með að fylla heila bók af sögum af þessum tíma. Í fyrsta túrnum mínum vorum við einir 5-6 guttar þetta 14-15 ára að fara í fyrsta sinn á sjó. Þetta voru meðal annarra, Júlli litli og Beggi Árna, Óli Jói heitinn, Stjáni Holla ofl.
Þegar við vorum að leggja frá kallaði Maggi Guðjóns frá bryggjunni og spurði hvort að eitthvað hefði nú ekki gleymst?
-Hvað áttu við? kölluðu þeir á móti.
-Nei, sagð Maggi, mér fannst bara vanta sandkassann og rólurnar!!
Axel Sjutt var fyrsti stýrimaður. Honum virtist vera sérlega í nöp við Gylfa Ægis, sem var að byrja sinn feril...
Lesa meira
Kristján Elíasson: Hafliði 1966
16. ágúst 2007
Svo liðu nokkur ár án þess að ég færi á sjó, eða þangað til ég hætti í þriðja bekk Gaggans, sennilega haustið ´65, og eftir áramótin fékk ég pláss á hálfum hlut á síðutogaranum Hafliða. Þetta var í janúar og allt á kafi í snjó á Siglufirði þegar farið var út. Mamma fylgdi mér niður á bryggju og hún talaði við einhverja kalla og bað þá nú að taka létt á syninum, passa að hann dytti ekki í sjóinn og þess háttar. Mér fannst þetta óþarfi hjá henni, maður var svo töff á þessum árum, í niðurþröngum terilynbuxum, hvítri nælonskyrtu og auðviatð með lakkrísbindi og bítlahár....
Lesa meira
Gunnar Trausti: Slöttungur af Hafliðasögum
04. júlí 2007
Það mun hafa verið í júníbyrjun árið 1969 laust eftir hádegi að ég sat sem endranær ásamt félögum mínum við næstfremsta borðið á Ísbarnum sem þá var í eigu Hreins Steinsonar. Þarna er í dag verslunin Ásgeir. Skólinn búinn og ástandið í atvinnumálum bæjarins ekki sérlega glæsilegt. Vindur þá sér ekki Páll Gunnlaugsson, bátsmaður á Hafliða og eiginmaður Stellu Einars, frænku minnar. Það gustar af Páli og hann gengur beint að borðinu okkar og spyr mig hvort ég sé ekki til í að fara túr á Hafliða? Ég játti samstundis og fékk að vita, í þann mund er Palli snaraði sér út úr dyrunum, að farið yrði út kl. sex þá um kvöldið. Þá hafði ég sannast sagna ekki migið í saltan sjó.
Þegar ég kom um borð eftir að Binna Jóns hafði Jesúsað sig og tekið af Stellu loforð um að Palli myndi hafa auga með drengnum sínum, þá mætti mér sjón í borðsalnum sem fékk nokkuð á mig. Þar stóð verndarinn minn, bátsmaðurinn og hoppaði bússuklæddur ofan á Árna Þórðar, sem hafði þegar farið sinn fyrtsa túr og kallaði í sífellu: - "Gefstu upp, helvítið þitt?!"
Þegar atgangurinn rénaði og Árni skreið undan borðinu þorði ég ekki fyrir mitt litla líf að spyrja hvað þarna hefði gengið á. Og hef reyndar aldrei komist að því!
Ég var einn af þremur nýliðum um borð. Hinir voru Jónas Björnsson, sem á síldarflutningaskipinu...
Lesa meira
Gunnar Trausti: Hafliðasögur
04. júlí 2007
Sagan segir að á atvinnuleysisárunum þegar að um 20-30 siglfirðingar héldu í atvinnuleit til Svíþjóðar varð mikið mannahallæri á Hafliða. þá var gripið til þess ráðs að ráða á einu bretti á Hafliða fimm menn sem allir voru nýsloppnir út af Litla Hrauni eftir að hafa greitt sína skuld við samfélagið. þetta voru þeir Valli í Bíó, Glæpaskalli, Diddi-Slowly, Elli flugmaður og Jói Víglunds....
Lesa meira
Fyrsta sigling Gunnars Trausta: Af Lolum og Tótum
04. júlí 2007
I met her in a club down in old soho
Where you drink champagne and it tastes just like cherry-cola
C-o-l-a cola
She walked up to me and she asked me to dance
I asked her her name and in a dark brown voice she said Lola
L-o-l-a lola lo-lo-lo-lo lolaÞað var Kinks-lagið um hana Lolu sem hljómaði þegar galvaskar hetjur hafsins héldu um borð í Hafliða SI 2 um miðjan desember 1970. Hjölli Tóta fór fremstur spilandi á gítarinn og við sungnum með ásamt kærustum og fylgdarliði. Allt var snævi þakið og ljósastaurarnir vörpuðu birtu sinni á ýturuðningana. Hersingin beygði neðst á Aðalgötu við trésmíðaverkstæði...
Lesa meira
1