Hangikjötskvöld togarajaxla 2008
16. febrúar 2010
Hugmyndin um hangigleði togarajaxla kom upp í stjórn Hafliðasamtakanna haustið 2008. Fyrsta veislan var haldin í húsakynnum Merkismanna að Ármúla 36. Þarna voru mættir um 14 manns. Jón Þorsteinsson, Örn Refur Pálsson, Hafsteinn Oddson, Marteinn Kristjánsson, Kjartan Ásmundsson, Gunnar Trausti, Birgir Ingimarsson, Guðbjörn Haraldsson, Leifur jónsson, Viktor Jónsson, Sævar Björnsson. kokkur var Óðinn Gústafsson
ELLIÐASÖFNUNIN- 50 ár frá því að Elliði SI 1 sökk
10. febrúar 2010
Þann 20. maí 2007 komu saman
nokkrir gamlir togarajaxlar
tengdir Siglufirði og stofnuðu
félagsskapinn Hafliða SI 2 í höfuðið á
samnefndum síðutogara.
Af sama tilefni var opnuð vefsíðan www.si2.is
Helsti tilgangur félagsins var að gangast fyrir söfnun á smíði líkans af Hafliða SI 2.
Skemmst er frá því að segja að þetta tókst með miklum ágætum og var líkanið afhent
FÁUM-félagi áhugamanna um minjasöfn á Siglfirði á Síldarævintýrinu á Sigló 2008.
Árið 2009 var ákveðið eftir þrýsting fyrrum skipsverja á Elliða SI 1 að hefja söfnun og
smíða líkan af Elliða sem fórst þann 10. feb. 1962 og með honum tveir menn.
Eftir árangurslausa leit, í Þjóðskjalasafni, Siglingamálastofnun og öllum þeim héraðs-
skjalasöfnum sem við leituðum til, af teikningum af þeim níu skipum sem smíðuð voru
í Shelby ásamt Elliða var brugðið á það ráð að hefja smíðina með ljósmyndir af Elliða
og myndir af líkönum af skipum sem smíðuð voru um þetta leyti að vopni.
Enginn af nýsköpunartogurunum siglir nú um höfin blá og teljum við Hafliðamenn
minningu þeirra og kallanna sem mönnuðu þá alls ekki haldið á lofti sem skyldi.
Það er von okkar að þú sjáir þér fært að styðja við bakið á þessu menningarframtaki.
Viðtal við Sigurjón Budda Jóhannsson
08. júní 2009
Í nýjasta tölublað Fiskifrétta er fróðlegt viðtal sem siglfirðingurinn Kjartan Stefánsson, blaðamaður á við Sigurjón Budda Jóhannsson, skipstjóra um sjómannsferilinn sem spannar 45 ár.
Hér er hægt að nálgast viðtalið.
Söfnun hafin fyrir líkani af Elliða SI 1
18. mars 2009
Á nýju starfsári Hafliða SI 2 var ákveðið eftir mikinn þrýsting fyrrum skipverja Elliða Si 1 að hefja söfnun til smíði líkans Elliða sem sökk í febrúar 1962 og með honum tveir Siglfirðingar....
Lesa meira
Hafliða partý
17. mars 2009
Gamlir skipverjar á Hafliða Si2 komu saman rétt fyrir jólin og gæddu sér á veitingum í húsnæði Merkismanna að Ármúla 36 í Reykjavík.
Hér geturðu skoðað myndirnar ...
Lesa meira